27.1.2011 | 09:45
Hvað gerir Vinun fyrir eldri borgara?
Þjónusta við eldri borgara:
- Stína er áttatíu ára í eigin íbúð og í nokkuð góðum málum að eigin sögn. Hún hefur takmarkað getað nýtt sér Ferðaþjónustu fatlaðra vegna erinda. Hún frétti af þjónustu Vinunar og ákvað að nýta sér hana til þess að fara á milli staða og kíkja á þessar fínu útsölur sem voru í gangi. Daginn eftir brunaði Stína í verslunarferð með aðstoðarmann. Stína hafði einnig fengið tölvu í afmælisgjöf en kunni lítið á græjurnar. Stína fékk tölvukennslu frá Vinun og er orðin nokkuð örugg. Hún nýtir sér óspart þá möguleika sem tölvan býður upp á, sér í lagi tölvusamband við vini og vandamenn.
- Jón er nýorðinn ekkill, ávallt verið við hestaheilsu en finnur hvernig máttur í höndum fer þverrandi. Jón hafði samband við Vinun og fékk starfsmann til þess að aðstoða hann við matseld og þrif. Einnig passar hann barnabörn sín af og til og fær þá starfsmann frá Vinun til þess að vera sér innan handar á meðan hann á gæðatíma með barnabörnunum. Ásrún er að endurskipuleggja heimilið, hún finnur að heilsan er ekki eins og áður og upplifir sig svifaseina og með minna þrek.
- Ásrún fær til sín stúlku frá Vinun, eða vinkonu sína eins og hún kallar hana. Þær taka til hendinni í skipulagningu, fara með á saumastofu, í pressun og versla í matinn. Það sem fellur þá til innan heimilisstarfanna er einnig í verkramma starfsmannsins frá Vinun.
- Guðlaug lenti í slysi á efri árum og er í hjólastól. Hún býr við góðar aðstæður á eigin heimili og fær til sín böðun þrisvar í viku, aðstoð við að komast í og úr rúmi, umsjón hjúkrunarfræðings með umhirðu sára, heilmikla natni við snyrtingu, rúllur í hárið og slíkt. Einnig sér Vinun um allar pantanir á sáravarnarbúnaði. Sama kona fer í bíó, býður heim í mat og fer á mannfögnuði. Vinun hefur veitt henni sveigjanlega þjónustu eftir því og tekið tillit til hennar lífsstíls.
Ath! Raunnöfnum hefur verið breytt í dæmasögunum.
---------------
Mikilvægt að eiga möguleika á þjónustu.
Rannsóknir sem beinst hafa að lífi og aðstæðum fólks hafa sýnt fram á mikilvægi þess að fólk hafi sjálft möguleika á að móta þá þjónustu sem þeim býðst. Jafnframt hafa þær bent á að við áföll molni sú sjálfsmynd sem fólk hafði og upplifunin fyrir því hvert það er. Því er mikilvægt að stuðningur taki mið af persónulegum þörfum hvers og eins svo viðkomandi nái sátt við sjálfan sig og umhverfið. Margir aðrir þættir spila að sjálfsögðu inn í og hafa áhrif á sjálfsmyndina en rannsóknir beinast mjög að þeim stuðningi sem fólk fær þegar áföll verða í lífi þess.
13.10.2010 | 14:07
,Ljótrar peysu' dagur á tímum niðurskurðar
Starfsdagur Vinunar fór fram við kostulegar undirtektir. Þema dagsins var ,ljót peysa' og hlaut Jóhanna, einn vaktstjóra okkar, verðlaun fyrir einstaka múnderingu. Hún fékk að launum mánaðarkort í Nordica Spa. Við þökkum hjartanlega fyrir samveruna!
Annars er margt á döfinni hjá Vinun núna. Óvissa og óöryggi gerir vart við sig nú með yfirfærslu frá ríki til sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks um áramótin. Við finnum fyrir aukinni þörf á úrræðum og stækkandi biðlistum. Þetta metum við ,óvísindalega' í gegnum símhringingar til okkar og fyrirspurnir í gegnum netið. Tilgangurinn með yfirfærslunni er hreinlega af góðum toga og er henni ætlað að færa þjónustuna nær íbúum. Yfirfærslan á sér þó stað á umrótartímum í íslensku samfélagi þar sem mikill niðurskurður er yfirvofandi á heilbrigðis- og velferðarsviði. Vinun vill því láta vita af sér, að það séu til lausnir í svona áskorunum og möguleiki á þjónustuúrræðum frá minni fyrirtækjum sem geta brúað bilið á meðan ,kerfið' nær auknum stöðugleika. Það er jú hagur okkar allra að grundvallarþjónusta skerðist ekki. Við vonum það besta og bíðum átekta.
Með vinsemd, Vinun
17.3.2010 | 10:34
Heilmargt framundan
Margt hefur á daga okkar drifið hér hjá Vinun. Vorið síast hægt og bítandi inn og við stöndum í ströngu við að móta þjónustupakka sérsniðna að hinum ýmsu þörfum. Hólmfríður og Erna undirbúa námskeið fyrir aðstandendur geðfatlaðra sem mun fara fram í sal okkar við Laugaveg 59. Hólmfríður verður svo með fjölskylduráðgjöf hjá Vinun sem lýtur að því að styrkja nærumhverfið og létta á þeim sálrænu erfiðleikum sem geta komið upp í kjölfar veikinda eða slysa. Kynningar fyrir eldri borgara hafa gengið vonum framar og höldum við áfram að heimsækja dýrðlegar kirkjur höfuðborgarsvæðisins þar sem okkur er afskaplega vel tekið. Síðast en ekki síst skutum við auglýsingu um þjónustu Vinunar og nú er verið að klippa og hljóðblanda hana áður en hún lítur dagsins ljós á helstu sjónvarpsmiðlum landsins. Margt spennandi er því framundan og við sitjum ekki auðum höndum við að boða út fagnaðarerindið og veita þjónustu sem er í stöðugri mótun í takt við tíðarandann og raunverulegar þarfir einstaklinga og fjölskyldu.
Með vinsemd,
Vinun
9.11.2009 | 18:07
Vinun býður nýtt starfsfólk velkomið til starfa
Sálfræðingurinn Hólmfríður Dögg hefur mikið unnið með fötluðum einstaklingum síðastliðin ár, m.a. á sambýli fyrir fjölfatlaða einstaklinga og einnig hefur hún unnið við greiningu á börnum með hugsanleg þroskafrávik og einnig ADHD ásamt foreldrum þeirra. Auk þess hefur Hólmfríður kennt uppeldisnámskeið fyrir foreldra á vegum Þroska- og hegðunarstöðvar. Hólmfríður stundar nú nám við Endurmenntun Háskóla Íslands í fjölskyldumeðferð.
Með vinsemd,
Vinun
23.6.2009 | 11:49
Kynning hjá Vinun í kvöld!
Vinun er ráðgjafar- og þjónustumiðstöð sem veitir alhliða einstaklingsmiðaða þjónustu til fólks sem býr við fötlun af einhverju tagi. Ekki síst veitir Vinun stuðning til aðstandenda og ráðgjöf að kostnaðarlausu.
Vinun þekkir þá brýnu þörf á að koma til móts við einstaklinga sem búa við fötlun og leggur sig fram um að þjónusta einstaklinga og aðstandendur þeirra út frá þeirra forsendum hverju sinni. Vinun spyr ekki um tíma né dag og þjónustan er þar af leiðandi sveigjanleg og í boði allan sólarhringinn. Einnig leggur Vinun sig fram um að sami starfsmaður sinni hverjum einstaklingi svo minni röskun verði á þjónustunni.
Heilmikil reynsla er komin af starfsemi Vinunar og stærum við okkur af framúrskarandi starfsfólki sem telur nú um 35 manns. Mikil ánægja hefur verið með þjónustuúrræði okkar og við siglum ótrauð framávið með von í brjósti um að úrræði fatlaðra fari sífellt batnandi með notendastýrðri þjónustu sem tekur mið af einstaklingnum og þörfum hans.
Endilega kíkið við, kynnið ykkur Vinun og takið þátt í umræðum sem lúta að þjónustuþörfinni á Íslandi í dag.
Með vinsemd,
Vinun
16.6.2009 | 14:22
Evald Krog í heimsókn hjá Vinun
Evald Krog er formaður heildarsamtaka fólks í Danmörku með vöðvarýrnunarsjúkdóma. Evald sem er 62 ára er með meðfædda fötlun og spáðu læknar honum lífi til aðeins fjögurra ára aldurs.
Evald er sennilega þekktasti baráttumaður Dana í málefnum fatlaðs fólks. Þrátt fyrir mikla fötlun er hann mjög virkur á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Árið 1993 átti hann mikinn þátt í því að lög voru sett um persónulega liðveislu sem gera fólki með mikla fötlun kleift að njóta allt að sólarhringsþjónustu á heimilum sínum og til virkrar samfélagsþátttöku. Þessi einstaklingsbundna þjónusta er veitt á forsendum hinna fötluðu en er ekki bundin stofnunum eins og tíðkast hérlendis.
MND félagið hefur tekið á móti Evald í heimsóknum hans til landsins og þökkum við félaginu sérstaklega góð samskipti. Þess má geta að MND heldur upp á alþjóðlegan dag félagsins þann 21. júní n.k. á Thorsplani í Hafnarfirði þar sem hjólastólarallí fer m.a. fram og heimildarmynd um Evald Krog er frumsýnd í Hafnarfjarðarleikhúsinu kl. 17 - 19.
www.vinun.is7.6.2009 | 13:15
MND á Íslandi
Vinun var með kynningu á starfsemi sinni á MND félagafundi síðasta fimmtudag. Á fundinum kom fram langþráð ósk þeirra sem að félaginu standa að breytingar yrðu í heilbrigðis- og félagsmálum. Þetta laut þá sérstaklega að tilhögun þjónustu við fatlaða og hversu erfitt uppdráttar þeir hafa átt við að ná einstaklingsmiðaðri þjónustu þar sem hlustað er algjörlega á þarfir þeirra, en ekki einungis þarfir 'kerfisins' sem þeim sinnir. Notendastýrð þjónusta er eitthvað sem fatlaðir hafa lengi barist fyrir og er í síauknum mæli að verða að vitundarvakningu á Íslandi. Danska módelið var rætt, en þar virðist þjónusta við fatlaða mun sveigjanlegri meðal annarra mikilvægra þátta sem Íslendingar geta vonandi tileinkað sér. Það má segja að slík tilhögun þar sem sjálfstæður rekstur fagfyrirtækja 'kemur að' kerfinu og aðstoðar fólk heima við, sé hagur allra þar sem 'kerfið' sparar og notendur þjónustunnar eru mun ánægðari og viðhalda sjálfstæði sínu lengur. Þetta á ekki síður við um aldraða, en aldraðir fara 3 - 5 árum fyrr inn á hjúkrunarheimili/stofnanir á Íslandi, en í öðrum nágrannalöndum okkar. Þetta eru afleiðingar þess að hlúa ekki að fólki heima við, á þeirra forsendum.
MND, eða motor neuron disease er taugahrörnunarsjúkdómur. Frá greiningu eiga sjúklingar jafnan 3 - 5 ár eftir ólifað og því er mikilvægt að viðhalda mögulegum lífsgæðum á þeim tíma sem eftir er með fjölskyldu og vinum. Aukið sjálfstæði heima fyrir er ómetanlegt og sjálfsögð mannréttindi að mati Vinunar.
Það er ósk okkar og einbeittur vilji að betri tímar séu framundan í þessum efnum og nú þegar niðurskurður er yfirvofandi á Íslandi er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að úrræði á borð við Vinun er hagur allra.
26.5.2009 | 11:34
Flutningur þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga
Efnahagshrunið hefur leitt af sér breytta tíma, þankagang og áherslur. Rof hefur myndast milli þjóðar og ríkisstjórnar og sáttum virðist ekki enn vera náð, þrátt fyrir nýafstaðnar kosningar og nýtt teymi við stjórnvölinn. Fyrri stefnumál eru þó blessunarlega enn á dagskránni og flutningur þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga, er eitt af þeim. Vinun sótti málþing um þessa 'yfirfærslu' frá ríki til sveitarfélaga og líkaði mjög vel. Það sem yfirfærslan getur gert fyrir fatlaða, í einföldu máli, er að minnka bilið milli þeirra og þjónustunnar, þ.e. að stytta vegalengdirnar bæði landfræðilega og samskiptalega. Vinun hefur lagt áherslu á þennan þátt þjónustunnar þar sem mið er tekið algjörlega af þörfum hvers og eins hverju sinni og að fólk eigi kost á sveigjanlegri þjónustu þegar það þarfnast hennar. 'Kerfið' getur oft verið þungt í vöfum og oft er talað um 'frumskóginn' sem fólk lendir í við að leita sér upplýsinga, réttinda, ráðgjafar og þjónustu. Úr þessu á að bæta með yfirfærslu þjónustu fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Málstofur voru settar upp á málþinginu sem lutu að eftirfarandi þáttum:
1. Aðferð við tilfærslu
2. Framtíðarsýn félagsþjónustu
3. Þjónustusvæði
4. Starfsmannamál
5. Mat á þjónustuþörf fatlaðra
Fagfólk og notendur þjónustunnar tóku þátt í málstofunum, og Vinun lagði einnig sitt af mörkum. Mjög fróðlegt var að heyra hina ýmsu reynslu fólks af þessum málum og samhljómur var í fólki með að það væri brýn þörf á yfir/tilfærslunni. Hins vegar eru ekki allir sammála um áhersluatriði enda mismunandi reynslur að baki hverjum og einum.
Markmið tilfærslu þjónustu við fatlaða skv. viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga, eru að:
*Bæta þjónustu og auka möguleika til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum.
*Tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðarsviða stjórnsýslustiga.
*Stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga.
*Styrkja sveitarstjórnarstigið.
*Einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Stefnt er að því að tímasetningar verkefnisins verði með þannig móti að eiginlegur flutningur við þjónustu fatlaða til sveitarfélaganna fari fram 2011 með mati á faglegum árangri og fjárhagslegum áhrifum tilfærslu árið 2014.
Undir þetta skrifa Kristján Möller, samgönguráðherra, Halldóra Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
26.5.2009 | 10:34
Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Vinunar teymið lét sig ekki vanta á vorráðstefnu Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins á Grand Hóteli 14. og 15. maí 2009. Ráðstefnan var haldin undir yfirskriftinni 'Fatlanir barna - Ný þekking - ný viðhorf' og var sótt af fagfólki sem og notendum þjónustunnar sjálfrar. Fróðlegt var að sjá aukna vitundarvakningu um þær áskoranir sem fram undan eru, ekki síst í ljósi niðurskurðar í félags- og heilbrigðismálum ríkisins. Sem dæmi um fyrirlestra má nefna 'Fölskyldumiðuð þjónusta', 'Samstarf milli þjónustustiga', 'Fjarfundir - Bætt þjónusta?' og síðast en ekki síst 'Fötlun er ekki afsökun, heldur áskorun' sem Embla Ágústsdóttir, menntaskólanemi með hreyfihömlun flutti. Þar að auki voru kynningar á rannsóknum og þróunarverkefnum.
Vinun kynnti starfsemi sína á ráðstefnunni með tilheyrandi bæklingum og fróðleiksmolum og var okkur einkar vel tekið. Það sem við höfum fram að færa í þessum málaflokki sem lýtur að Greiningarstöðinni er mjög svo öflugt ráðgjafateymi til stuðnings börnum sem greinast með einhverfuróf og fjölskyldum þess. Eygló Ingólfsdóttir, einhverfuráðgjafi fer þar fremst í flokki og við höfum framúrskarandi fagfólk sem leggur sig fram um að hlúa að barninu og styrkja fjölskyldu þess til hversdagsathafna.
Vinun býður upp á beina innlitsþjónustu og samfellda viðveru allan sólarhringinn. Þetta kemur til móts við enga/litla aðstoð sem foreldrar fá inni á heimilinu sjálfu. Vinun vill að öllum líði sem best á heimilinu og styður þannig við þá mikilvægu einingu sem fjölskyldan er.
26.5.2009 | 10:21
Vinun 'í nærveru sálar'
Gunnhildur Heiða Axelsdóttir stóð sig með stakri prýði í viðtali við Kolbrúnu á ÍNN, fyrir þáttinn 'Í nærveru sálar'. Þátturinn verður endursýndur á næstu dögum, en þar koma fram helstu áhersluatriði Vinunar og ýmis fróðlegar vangaveltur.
Um bloggið
Vinun - Ráðgjafa og þjónustumiðstöð
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 1598
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


gattin
